Sjávarútvegsráðstefnan 2016 - Dagskrádrög í júlí

Næsta Sjávarútvegsráðstefna verður haldin 24.-25. nóvember 2016 að þessu sinni í Hörpu. Á Sjávarútvegsráðstefnunni eru 14 málstofur og flutt verða um 70 erindi. Hægt er að sækja dagskrádrög HÉR. Að þessu sinni er aðeins birt vinnuheiti á erindum, en endanleg heiti erinda og nafn fyrirlesara birtist í september.

Hlutverk Sjávarútvegsráðstefnunnar er að halda árlega sjávarútvegsráðstefnu og er tilgangur hennar að: 

  • stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg og
  • vera vettvangur fyrir samskipti allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi